Við fórum fjögur, ég, Höddi, Pálína og Auður, á toppinn á Esjunni um daginn. Rosalega gaman og hrikalega góð líkamsrækt. Tókum nokkrar myndir sem ég er búin að setja í myndaalbúmið. Læt sýnishorn fylgja þessari færslu.
Höddi að skrifa í gestabókina á toppnum.
Auður líka.
Svo Pálína.
Loks ég, með minn fráááábæra svip!
Skoðið svo fleiri myndir í albúminu.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Ég er í vettvangsnámi núna og eyddi síðustu viku í að kenna 8.-10. bekk íslensku, gengur bara vel og þetta er rosalega skemmtilegt. Vikan sem er að hefjast fer líka í vettvangsnám, kennsla næstu tvo daga, svo er foreldradagur á miðvikudaginn og svo er vetrarfrí á fimmtudag og föstudag þannig ég verð líka í fríi en maður nýtir þá daga bara til að ná upp lestri.
Prófataflan kom 10. október og er ég búin í prófum 11. desember. Það verður sweet, var búin 19. desember í fyrra. Á flug svo seinnipart 14. desember. Verður geeeeggjað að komast heim í jólafrí.
Helgin sem er að líða er búin að vera bara róleg og góð. Bara búin að læra, baka köku og fór í góða göngu með Jóni Einari um Gróttuna í gær. Fórum svo í bíó í gærkveldi á Sex Drive. Mér fannst hún mjög góð, hló allavega mikið yfir henni. Fékk samt vægt sjokk þegar ég borgaði fyrir okkur Hödda í bíó, 2.100 kr.! VÁÁÁ!!!!
Ég og Höddi fórum svo í göngu um Laugardalinn í dag og bara svona rólegheit í gangi þessa dagana.
Fékk allt í einu rosalega þörf til þess að blogga... Bloggaði síðast 1. febrúar eða eitthvað álíka. Kannski maður segi ykkur aðeins frá síðustu mánuðum í suttu máli...
-Kláraði fyrsta árið mitt í Kennó 16. maí, minnir mig... Strax eftir síðasta prófið byrjaði ég að pakka og alles því við Höddi vorum að fara til RÓMAR 18. maí. Fórum eldsnemma að morgni 18. maí frá Keflavíkurflugvelli, flugum til London Stanstead, ég ætti að vera orðin vel að mér þar, hef flogið þangað þrisvar núna. Þar var nokkra klukkutíma bið, svo var haldið af stað seinnipartinn með RyanAir til Rómar. Þegar til Rómar var komið beið maður eftir okkur með skilti með Hödda nafni á, Óskar hafði græjað fyrir okkur bíl svo við þyrftum ekki að taka leigubíl, þvílíki lúxusinn Mikið skemmtilegt var gert í Róm og við vorum heppin með veður. Vatikanið var skoðað, Péturskirkjan, Spænsku tröppurnar, Colosseum, farið var til Nettuno á ströndina. Borðuðum mikið af góðum mat, fórum m.a. á dýrasta barinn í Róm og fengum okkur hrikalega góða kokteila. Fórum í svona skoðunarferð í Róm með rútu og svo var bara slappað af, notið lífsins og borðaður ís. Æðisleg ferð í alla staði og næst verður það bara París! Gerðum mikið meira, ég bara man ekki allt svona í fljótu bragði.
-Þegar heim var komið var bara strax byrjað að vinna en ég var flokkstjóri heima í Neskaupstað og var það alveg æðislega gaman, finnst svo gaman að vinna með krökkum.
-Það var ekkert sérstaklega mikið djamm á mér í sumar en þar ber helst að nefna sjómannadagsballið, Hátíð á Höfn (þó svo að ég hafi nú ekkert djammað þar, var nú bara veik), Sálin hans Jóns míns á Egs og að sjálfsögðu Neistaflug. Síðan fór ég í þrjár útilegur eina í Atlavík í júní með Marvin, Erlu Rán og Elvari bró, eina í Stóra-Sandfell með bæjarvinnukrökkunum og síðan í Ásbyrgi síðustu helgina áður en haldið var suðuð aftur með Pálínu og Jonna, það var alveg hreint æðisleg ferð.
-Við Pálína vorum ofurduglegar að hjóla í sumar og fórum eiginlega á hverjum morgni fyrir vinnu að hjóla. Ójá, ég myndi nú kalla þetta DUGNAÐ!
-Núna er ég bara komin til Reykjavíkur og við verðum aftur hérna á Kleppsveginum, ég er búin að vera ein í Reykjavík í tæpar þrjár vikur en á morgun ætla ég að halda austur á land og sækja minn mann! Er orðin ansi þreytt að vera hérna ein en Kolbeinn er nú búin að halda mér félagsskap og svo að sjálfsögðu Pálína og Jonni og Jón Einar, jebb matarklúbburinn búin að sameinast aftur! Fer reyndar austur á asnalegum tíma... Missi af Laugarvatnsferðinni og svo er Óskar bró að koma suður í kveld, helvíti leiðinlegt að missa af þessu...
-Skólinn gjörsamlega kominn á fullt, tvær vikur búnar og maður er svoleiðis að drukkna í lestri að ég veit varla hvað ég heiti... Ég, Kristrún og Hjalti erum komin með nýjan heimaskóla vegna þess að það er engin unglingadeild í Korpuskóla lengur vegna mygslusvepps í gámunum sem þau voru látin húka í greyin.. Nýi heimaskólinn er Ölduselsskóli og þar verðum við með Davíð Snorra í vetur þannig að við erum orðnir fjórir íslenskunördar sem eigum eftir að fylgjast að í vetur, þetta verðu bara stuð!
-Fór á Háskólaball fyrir viku. Við Petros borðuðum saman og svo hittumst við nokkur hérna heima og fórum saman á ball á Broadway, ógeðslega gaman! Svo er ég búin að fara í keilu og RÚSTA matarklúbbnum, Jón Einar þú hefur ekkert í mig, HAHA! Ég er samt ekki búin að fara í bíó... Dálítið spes...
Jæja, er hætt þessu...
Veit ekkert hvort ég mun blogga aftur... Kemur í ljós, kannski hellist yfir mig aftur svona þörf
Bleee
11. september 2008 klukkan 19:08
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 7 athugasemdir
Vúhú, þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt föstudagskvöld. Á meðan flestir sem ég þekki eru að skemmta sér á þorrablóti heima þá er ég nýbúin að leggja frá mér aðferðafræðina og félagsfræðina. Ótrúlega skemmtilegt að lesa texta síðan 1851 sem varla skiljast en maður lætur sig hafa þetta.
Það er nú margt búið að gerast þannig síðan ég skildi við ykkur síðast:
- Skólinn byrjaði og ótrúlega gaman að hitta alla bekkjarfélagana eftir jólafrí, byrjaði á íslenskukjörsviðinu og erum við sjö úr bekknum þannig það er endalaus gleði í íslenskutímunum, sem og öðrum.
- Búin að bralla margt og mikið með Pálínu, Jonna og Jóni Einari, reyndar er Jón úti í Þýskalandi núna þannig það eru bara the four amigos í augnablikinu en strax og hann kemur heim verður haldið þorrablót.
- Rokkveislan á Broadway 18. jan var geggjuð. Dýrindiskjúklingaréttur í matinn hjá Pálínu og rabbabarakaka með ís í eftirrét, svo skundað á show sem var alveg æðislegt, skemmti mér hrikalega vel. Gaman líka að hitta allar stelpurnar að austan, vantaði bara Miðbæjarprinsinn!
- Þrítugsafmælið Maríu bekkjarsystur var æðislega skemmtilegt og hún lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 22 ára.
- Búin að fara tvisvar í bíó, Death at a Funeral og Brúðgumann. Mér fannst Brúðguminn vera mjög skemmtileg mynd, hló allavega mikið!
- Svo er maður búinn að læra og læra og læra og læra og reyna hreyfa sig eitthvað inn á milli í Veggsportinu.
Maður hefur svona eitthvað til að hlakka til, það er nú aðallega í þessum mánuði litla þorrablótið okkar matarklúbbsins og síðan árshátíð Kennó sem verðu 29. feb sem ég hlakka mjög mikið til að fara á (það er samt fara 1. feb núna, en jæja).
Síðan er það aðalfréttin! Gleðidúettin SvAgnes ætlar að leggja land undir fót og fara þetta árið til Rómarborgar (síðasta ár var það London, þá er bara eftir að fara til Parísar) og vera í menningunni þar og hitanum í 11 nætur og láta Óskar kenna okkur að vera dálítið menningarlegar! Brottför er áætluð 20. júní þannig það er bara, BARA, tæpt hálft ár í þetta! Úff.. En það verður fljótt að líða.
Segjum þetta gott í kvöld. Ætla að fara koma mér úr tölvunni!
Sumar og sólarkveðjur úr kuldanum í Reykjavík (einungis -14° úti)
01. febrúar 2008 klukkan 23:25
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 6 athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár og takk æðislega fyrir það gamla.
Jólin hjá mér eru búin að vera ótrúlega góð! Eiginlega of góð og ég vill engan veginn fara aftur til Reykjavíkur í stressið og vitleysuna. Ég fékk rosalega mikið af pökkum, manneskja sem er orðin tvítug, alveg fáránlegt! Ég ætla að telja svona upp það sem ég fékk:
- Huge bjarnarinniskó, síma og hálsmen frá Hödda. - Svartan jakka, Harry Potter og dauðadjásnin og pizza pönnu frá foreldrunum. - Harry Potter and the Order of the Phoenix og Gilmore Girls seríu 3 (ég veit, mér finnst þær bara yndislegar) frá Óskari og Elvari. - Teppi og spöng frá Auði Jónu. - Perlufesti (fjólubláa) og rosalega flotta skál frá Birtu. - Geggjaðan bol frá Svönu. - Flottar og hlýjar sokkabuxur frá Hafrúnu - Bókina Postulín frá Ingibjörgu. - Bókina Dauði trúðsins, kerti og kertastjaka frá Bjarna, Dísu, Halla og Hákoni. - Svissneskt unaðskonfekt frá Miðbæjarprinsinum - Og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu. - Svo á ég gjöf inni hjá Rögnu Fanney og Mörtu smörtu.
Mér fannst skemmtilegasta gjöfin vera pizzapannan og hlakka ég mikið til að prófa hana. En það eru Marta og Olga frænku mínar sem fá að vera tilraundýr mín. Ætla að testa hana á þeim. Það verður forvitnilegt hvernig þetta tekst.
Ég er svo mest búin að liggja og lesa bækur, horfa á myndir, fara í nokkra göngutúra, fara í sund og svo fór ég á Hornafjörð í tvær nætur.
Áramótin voru geggjuð! Æðislegur matur, brennan var nú ágæt miðað við að maður varð næstum úti en iss, erum við ekki Íslendingar? Allavega lét ég vindinn og rigninguna ekki mikið á mig fá, Áramótaskaupið kom skemmtilega á óvart og var mikið hlegið af því hérna heima, flugeldarnir voru að vanda flottir og ballið var dúndurskemmtilegt. VÁ!!! Æðislegt alveg. Birta!! Þín var sárt saknað á ballinu dúllan mín, farðu bara vel með þig. Svo var smá svona get together hérna heim langt fram undir morgun. Svona eiga áramót að vera! Nýársdagur var bara rólegur og maður las bara á milli þess sem maður lagði sig.
Núna er sælan alveg að verða búin og það er borg óttans sem bíður manns og er förinni heitið þangað á morgun og svo byrjar skólinn á mánudaginn. Hann byrjar vonandi rólega. Maður er svo gjörsamlega búinn að snúa sólarhringnum við. Maður þarf nú einhvern tíma til þess að koma úr þeirri rútínu og þá næstu.
Segjum þetta gott í dag.
Gleðilegt nýtt ár og óska ég ykkur öllum farsældar á nýju ári!!
04. janúar 2008 klukkan 15:35
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 5 athugasemdir
Já, upp er runninn aðfangadagur og einungis 3 1/2 tími þar til jólin ganga í garð.
Ég er náttúrulega komin heim í paradísina og hef það rosalega gott. Ég er komin í brjálaðan jólafíling, reyndar er ég búin að vera í honum í langan tíma, en nú er hann sko í hámarki og ég get ekki beðið eftir að hátíðin gangi í garð. Ég er eins og börnin. Enda er ég ennþá bara barn.
Ég er nú búin að gera hitt og þetta síðan ég kom heim. Fór í jólaglögg og piparkökugleði til Miðbæjarprinsins síðasta fimmtudag, jólagleði í Egilsbúð síðastliðið laugardagskvöld og inn á milli er ég búin að slappa af með fjölskyldunni og vera í brjáluðum jólaundirbúningi.
Við systkinin fengum í skóinn í nótt frá Kertasníki og það var spilið Bíóbrot, kvikmyndaspilið hann Sveppa sem lá undir litla jólatréinu. Ég hlakka gífurlega til að spila þetta spil, er búin að skoða þetta svona aðeins og þetta lofar góðu.
Mér gekk bara vel í öllum prófunum en þó á ég eftir að fá úr þeim öllum. Það kemur vonandi bráðum inn a Uglu. Er að verað geðveik á að vita ekki neitt.
Segjum þetta gott í dag og hittumst eiturhress á balli annan í jólum!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þakka ég ykkur fyrir allar frábæru stundirnar á árinu sem er að líða! Sérstaklega matarklúbburinn minn og allir krakkarnir sem að gerðu sumarið 2007 ógleymanlegt og ekki má gleyma bekknum mínum í Kennó, er svo heppin að hafa lent með ykkur í bekk! Elska ykkur öll.
Jólakveðja Agnes Heiða
24. desember 2007 klukkan 14:36
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 5 athugasemdir
Pálína þú ert svo mikið yndi! Búin að vera hughreysta mig með hvað það er stutt eftir og þetta hjálpaði mikið. Bara vika þangað til ég legg frá mér bækurnar og svo vika og 15 klukkustundir í jólafrí! Aaaaah, það verður svoooo ljúft.
En já, eins og margir landsmenn þá er ég í prófum og ég er svona að missa vitið. Fyrsta prófið búið (var á föstudaginn) og tvö eftir. Ritun fræðitexta, samskipti og upplýsingatækni var á föstudaginn og mér fannst það bara ganga glimrandi en jeminn hvað ég var stressuð! Þroska-og námssálfræði er svo á fimmtudaginn og ég er bara að drepast úr stressi, bókstaflega! Þetta er svo mikið lesefni og maður er búin að lesa frá morgni til kvölds alla daga. Nám og kennsla er svo miðvikudagin 19. des og ég er svona aðeins minna stressuð fyrir það en samt að farast!
Um helgina þurfti ég þó aðeins að fara að læriplaninu mínu og skunda á Selfoss og fara á jólahlaðborð. Jólahlaðborð með vinnunni hans Hödda og gistum á Hótel Selfossi eina nótt. Váááá, ekkert smá flott hótel og geggjað jólahlaðborð. Ekkert smá gaman, skemmtilegt fólk sem að Höddi er að vinna með. Þetta var alveg æðislegt. Vegna þessa jólahlaðborðs þá var nú ekki lært frá morgni til kvölds um helgina en maður fór nú bara á fætur klukkan 8 á laugardagsmorgninum og las til svona þrjú. Þa er nú ágætt. Svo á sunnudeginum byrjað bara um tvöleytið og lesið eitthvað frameftir þannig ég missti nú ekki mikið.
En shiiiit sko! Þó ég hafi lesið svona mikið þá finnst mér ég ekki muna neitt! Ohhhh... Jæja, ég bara vona að þetta fari allt á besta veg og að þær verði ekki nasty á prófinu. Önnur þeirra ólétt og á að fara að eiga bara núna liggur við og er orðin nokkuð pirruð. Vona að það bitni ekki á prófinu.
En jeminn eini hvað ég hlakka til jólanna! Er búin að vera hlusta á jólalög svona inná milli lærdóms, við skreyttum hérna smá. Hentum upp nokkrum seríum og það er svo illa gert að það er eins og 6 ára krakki hafi gert það. Og svo er ég búin að vera horfa á jóladagatalið, ooo hvað ég elska þetta jóladagatal! Þó að þetta sé í þriðja skiptið sem þetta er sýnt. Ég bara fæ ekki nóg af Pú og Pa. Eru snillingar!
Svo kemur fyrsti jólasveinninn í nótt, Stekkjastaur og ég ætla að setja skóinn minn útí glugga og athuga hvort ég fái eitthvað.
Segjum þetta gott..
Væri gaman að fá eitt kvitt eða svo...
11. desember 2007 klukkan 21:10
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 12 athugasemdir
Margt hefur gerst síðan síðast og þar ber hæst að nefna vettvangsnámið. Minn heimaskóli er Korpuskóli og var ég svo heppin að Hjalti og Kristrún eru með mér í þessum skóla. Það var ótrúlega gaman hjá okkur og þetta er skemmtilegur skóli. Starfsfólkið alveg frábært, tók okkur opnum örmum og manni fannst maður bara vera orðinn einn af liðinu sko!
Maður er búinn að vera sveittur yfir lærdómnum, er eiginlega búin með öll verkefni þannig ég ætla að byrja að demba mér í próflesturinn á morgun og það verður sko enginn miskunn, það eru alveg billjón þúsund efni sem ég þarf að vera með á hreinu og nú er það bara að duga eða drepast! Er samt alveg með kvíðahnút hérna, sérstaklega gagnvart sálfræðinni og reyndar námi og kennslu líka, svo óhemju mikið efni sem þarf að fara yfir. Ég á eftir að fara 3 daga í skólann og svo fer ég í fyrsta prófið 7. des (Ritun fræðitexta, samskipti og upplýsingatækni), annað prófið 13. des (Þroska- og námssálfræði) og svo þriðja og síðasta prófið 19. des (Nám og kennsla). Fæ góða pásu milli prófa og þá er um að gera að nýta þær sem best.
Ég verð að viðurkenna að ég er komin í gífurlegt jólaskap og get ekki beðið eftir að komast heim í Neskaupstað heim til mömmu og pabba í jólastemmninguna! Finnst svo leiðinlegt að koma svona seint heim, langar að taka sem mest þátt í jólaundirbúningnum en maður fær ekki allt.
Ég fór svo í heimsókn til Hafrúnar á miðvikudaginn og er hún svona að jafna sig hægt og rólega eftir veltuna en það er framför hjá henni á hverjum degi. Efast ekki um það að hún eigi ekki eftir að jafna sig, er svo helvíti sterk stelpan!
Segjum þetta gott..
Ekkert voða skemmtilegt blogg, dulítil ritsífla í gangi (ekki skrítið, er búin að skrifa svo mikið fyrir skólann að ég er bara búin með kvótann í bili).
Heyrumst síðar!
Heyriði og eitt.. Við erum búin að selja Benzann Gífurleg sorg á Klepparanum núna. Nú þeytist ég um göturnar á ljótri toyotu corollu.. Ekki nærrum eins töff og benzinn.. Oj
24. nóvember 2007 klukkan 18:15
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 6 athugasemdir
Nohh, nohh! Rúmar tvær vikur síðan ég bloggaði síðast. Svakalegt, ég bara einhvern veginn er ekki alveg að nenna þessu. Er líka ekkert gaman að blogga ef enginn skoðar. Fólk myndi kannski skoða ef ég væri duglegri að blogga?
Helgin er búin að vera að mestu leyti róleg. Bara lærdómur og rólegheit. Höddi var að vinna á föstudaginn til tvö um nóttina þannig ég ákvað að kaupa mér eina Simpsons seríu í safnið og lá yfir henni mestallt kvöldið, nú á ég allar seríurnar.
Gærdagurinn fór í lærdóm og meiri Simpsons og svo um kvöldið fórum við á Argentínu steikhús að borða því það var bekkjarreunion hjá Hödda og strákunum sem voru með honum í bekk í Borgó því þeir voru að fá einhverjar viðurkenningar. Þetta var alveg hrikalega flott, við dressuðum okkur í kjól og jakkaföt og fengum mjög góðan mat. Humarsúpa í forrétt, ég fékk mér lamb í aðalrétt en Höddi naut og svo var heit súkkulaðikaka með ís og ávextum í eftirrétt. Ótrúlega gott! Og þjónustan alveg svakalega góð. Mæli með þessum stað! En þetta allt saman kostaði náttúrulega sitt. Við vorum þarna alveg frá 7-11 í gærkveldi, en eftir þetta þá fór ég bara heim og beilaði á öllu djammi. Höddi kíkti eitthvað aðeins í bæinn en hringdi svo fljótt og bað mig um að sækja sig, þannig við vorum bara róleg.
Í dag erum við búin að taka klukkutíma göngu um Laugardalinn og kíktum aðeins í grasagarðinn, Höddi er núna að leika sér á hjólinu sínu (fjárfesti í nýju KTM hjóli um daginn og er alveg að tapa sér á þessu) og þá ætla ég að nýta tímann og læra aðeins.
Þannig þetta er bara búin að vera mjög róleg og góð helgi. Svona eiga helgar að vera!
Stefnan er síðan tekin á Höfn í Hornafirði næstu helgi og aðeins að kíkja í sveitina, það verður alveg æðislegt.
Ég og Ingibjörg erum byrjaðar á fullu í skvassi í Veggsport og erum orðnar ótrúlegar góðar í þessu! Þetta er líka algjör snilld, svo gaman í þessu og maður svitnar ekkert smá í þessu þannig maður er alveg að taka hrikalega á! Ætlum meira að segja að fara að mæta einhvern tímann á morgnana klukkan hálfsjö, gaman að sjá hvernig það verður.
Og eitt enn... Ég er löngu búin að fá prófatöfluna mína og er ekki búin í prófum fyrr en 19. desember, þannig ég kem ekki heim á Neskið fyrr en fyrsta lagi 19. eða 20. des Ömurlegt! Og svo eru Höddi og fjölskylda að fara til Danmerkur í desember og ég kemst ekki með út af þessum helvítis prófum!! Hefði verið algjör snilld að fara í jólatívolíið og versla jólagjafirnar bara úti.
En jæja, best að fara læra!
Kvitta thank you..
21. október 2007 klukkan 16:35
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 7 athugasemdir
Guð hvað ég er fegin að það er kominn föstudagur! Ég er eitthvað svo þreytt eftir þessa viku. Búin að vera lesa fyrir próf og vera á fullu að vinna í ritgerð. Fór einmitt í þroskasálfræðipróf í dag og gekk bara nokkuð vel, er bara mjög sátt.
Fyrst að ég er búin að vera svona hrikalega dugleg í vikunni þá get ég ekki beðið eftir að geta legið aðeins í leti um helgina. Hún verið sko tekin rólega og einnig farið í afmæli til Mörtu frænku annað kvöld, gellan að verða tvítug! Reyndar eru krakkarnir að austan í menningarferðinni núna og ætli maður lendi ekki á eitthvað skrall með þeim. Æi, það er alveg spurning hvort maður nenni því. Halli og Freydís gista einmitt hjá okkur, komu í gærkveldi.
Síðasta helgi var hins vegar alveg hrikalega skemmtileg. Það var fyrsta bekkjarpartýið hjá bekknum. Það var einmitt haldið hérna hjá mér og var bara mjög gaman. Ýtti bekknum enn meira saman og vorum orðin mjög samrýmd fyrir, er svo ánægð með bekkinn minn. Fórum síðan í bæinn, byrjað á Celtic, farið svo á Óliver og endað á Hressó í brjáluðu stuði. Þakka bara fyrir mig B- bekkur.
Það sem framundan er er bara meiri lærdómur og enn meiri lærdómur. Alltaf jafnmikið að lesa í sálfræðinni og svo eru verkefni og verkefni og verkefni. Erum einmitt búin að fá kynningu á verkefninu sem er í þroskasálfræðinni og þar sem við eigum að athuga tvö börn og við María erum búnar að velja að athuga með sjálfsmynd þessa tveggja barna, þ.e. hvernig þau lýsa sér. Er mjög spennandi að sjá hvernig það kemur út.
Annars er ekkert mikið að frétta. Kolbeinn stækkar og dafnar. Freydís leikur sér alveg með hann hérna á meðan ég þori varla að koma við greyið. Þetta fer að lagast. Hann er bara svo afbrýðissamur útí mig þegar ég er með Hödda því hann er orðinn svo háður honum. Og Atli það verður að bíða með myndir því myndavélin okkar er alveg dáin og ég held að það sé ekki á dagskrá að kaupa nýja í bráð, þannig fólk verður bara að koma í heimsókn til mín og skoða gripinn.
Segjum þetta gott í dag og eigiði góða helgi!
05. október 2007 klukkan 15:12
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 7 athugasemdir
Ég verð að segja það að mér finnst þið vera arfaslök í kommentunum. Jeminn, ég er kannski bara svona leiðinleg. En það skiptir ekki ég ætla samt að segja ykkur frá nýja fjölskyldumeðliminum:
Já, nýi fjölskyldumeðlimurinn er hann Kolbeinn, en hann er dísarpáfagaukur og ég á hann! Höddi gaf mér hann í afmælisgjöf. Já, maður fær ekki venjulegar afmælisgjafir frá honum Herði heldur einhverjar þvílíkar sem maður býst sko ekki við að fá. Jæja, við erum nú búin að vera saman í rúm 3 ár og fyrsta afmælisgjöfin var nú nokkuð venjuleg en það var svona krem og snyrtivörur frá Clinque en sú næsta var nú nokkuð öðruvísi og dýrari en það var litli sæti, bleiki krossarinn sem er merktur Agnesi bak og fyrir. Já, sem sagt afmælsigjöfin í ár er þessi sæti dísarpáfagaukur sem við erum búin að gefa nafnið Kolbeinn, þó við vitum ekkert hvort kynið hann/hún er sko. En það er önnur saga.
Ég get ekki sagt að ég sé mikil dýramanneskja. Eins og flestir vita þá var ég brjálæðislega hrædd við hunda á mínum yngri árum. Ég fór hreinlega að grenja ef hundur horfði á mig. En ég hef lent í svo mörgum slæmum reynslum með hunda þannig þetta er kannski alveg skiljanlegt. Ég svona læknaðist að mestu leyti af þessari hundafóbíu þegar ég var að bera út póstinn heima í tvö sumur, það voru líka 30-40 hundar á mínu svæði þannig annað var ekki hægt. En jæja, ég sem sagt þori ekki mikið að koma við hann Kolbein og við erum tvö búin að vera ein heima um helgina. Höddi skrapp vestur í Dali til ömmur sinnar og afa í smalamennsku og annað en ég varð eftir í bænum vegna kvefs og lærdóms. Fór til Ingibjargar og Víðis á föstudaginn og átti gott kvöld en í gær var ég svo hrikalega slöpp að dagurinn fór eiginlega í svefn og oggulítinn lærdóm (en ég er búin að bæta það upp í dag. En jæja já, hann Kolbeinn vill aldrei vera í búrinu sínu í of langan tíma þannig maður opnar bara og hann stendur yfirleitt bara á hurðinni en í dag tók hann upp á því að fljúga eitthvað um (hann getur ekki mikið flogið því það er nýbúið að klippa af honum flugfjaðrirnar, þannig hann klessir bara á næsta vegg, en er byrjaður að læra að bremsa) og ég náttúrulega í panikk því ég þori ekkert að taka bara upp eins og Höddi gerir því hann byrjar alltaf að reyna að bíta í mann og ég vill ekkert svoleiðis. Þannig þið getið ímyndað ykkur hvernig ég var hérna eins og hálfviti stóð alveg ráðalaus. En hann lenti nefnilega á gólfinu og honum líður svo illa svona lágt niðri og hann var alveg jafnráðalaus og ég, labbaði bara í hringi en svo fattaði ég að hrikalega gott ráð, ég náði bara í búrið hans og lét það á gólfið við hann og hann klifraði strax upp í það. Hjúkk, hvað ég var ánægð. Shiiii, svo hleypir Höddi honum út þegar hann kemur á eftir. Þeir eru orðnir mjög góðir vinir.
En ég ætlaði bara aðeins að segja ykkur frá honum Kolbeini, hann er hrikalega sætur og það heyrist ekki mikið í honum.
Jæja, heyri í ykkur seinna. Þið megið alveg kommenta.
Bæææ
23. september 2007 klukkan 17:01
Agnes Heiđa Ţorsteinsdóttir 9 athugasemdir
Atvinna: Grunnskólakennarafrćđinemi á menntavísindasviđi viđ Háskóla Íslands
Hjúskaparstađa: Alveg á pikkföstu međ Hödda mínum
Um mig: Er 21 árs ung snót frá Neskaupstađ. Útskrifađist frá Borgarholtsskóla jólin 2006 og hóf nám viđ KHÍ haustiđ 2007. Er nú á kennarabraut á menntavísindasviđi viđ Háskóla Íslands.